Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 04. júlí 2022 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Inter býðst að fá David Luiz
David Luiz á leið til Inter?
David Luiz á leið til Inter?
Mynd: Getty Images
Það stendur til boða fyrir ítalska félagið Inter að fá brasilíska varnarmanninn David Luiz frá Flamengo. Goal í Brasilíu greinir frá þessu.

Luiz yfirgaf Arsenal á síðasta ári eftir nokkuð kaflaskipta dvöl en hann hélt til til Brasilíu og samdi við Flamengo.

Hann hafði áður spilað fyrir Chelsea, Benfica og Paris Saint-Germain en taldi það rétti tímapunktinn að fara aftur til heimalandsins.

Þessi 35 ára gamli miðvörður var meiddur fyrst þegar hann kom til Flamengo en varð mikilvægur hlekkur í liðinu þegar það leið á tímabilið.

Goal í Brasilíu segir nú frá því að hann gæti verið á leið aftur til Evrópu en Inter býðst að fá hann. Luiz er sagður með klásúlu í samningi sínum við Flamengo sem gerir honum kleift að semja við lið í Evrópu.

Núverandi samningur hans við Flamengo rennur út í desember og hefur Luiz ekkert rætt við brasilíska félagið um að framlengja dvölina.
Athugasemdir
banner
banner