Fotbolti.net
04.07.22 - 21:41
Brynjar Ingi Erluson

Nuno tekur við Al Ittihad (Staðfest)

Nuno tekur við Al Ittihad (Staðfest)
Canon

Mynd: Al Ittihad

Nuno Espirito Santo er nýr þjálfari Al Ittihad í Sádi-Arabíu en félagið tilkynnti komu hans í dag.
Portúgalinn var ráðinn hjá Tottenham á síðasta ári eftir að hafa stýrt Wolves við góðan orðstír.

Hann entist í fjóra mánuði í starfi áður en hann var látinn taka poka sinn hjá Tottenham en hann hefur verið án starfs síðan.

Nú er hann mættur til Sádi Arabíu þar sem hann mun þjálfa lið Al Ittihad. Samningur hans er til næstu tveggja ára.

Liðið er þriðja sigursælasta lið Sádi Arabíu en það hafnaði í 2. sæti deildarinnar á síðustu leiktíð.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.