Fotbolti.net
04.08.14 - 20:45
Magnús Már Einarsson

Roy Carroll til Notts County (Staðfest)

Caroll lætur heyra í sér.

Caroll lætur heyra í sér.

Canon

Mynd: Getty Images

Roy Carroll, fyrrum markvörður Manchester United, hefur gengið til liðs við Notts County í ensku C-deildinni.

Carroll var síðast á mála hjá Olympiakos í Grikklandi en samningur hans þar rann út á dögunum.

Þessi 36 ára gamli Norður-Íri hefur meðal annars leikið með Derby, West Ham og Rangers á ferlinum sem og OB í Danmörku.
Shaun Derry, stjóri Nott County, hefur verið að safna liði í sumar en hann fékk einnig Alan Smith til félagsins á dögunum.

Smith og Carroll þekkjast vel en þeir voru liðsfélagar hjá Manchester United á sínum tíma.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.