Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 04. ágúst 2020 11:34
Magnús Már Einarsson
Iker Casillas leggur hanskana á hilluna
Mynd: Getty Images
Spænski markvörðurinn Iker Casillas hefur lagt hanskana á hilluna, 39 ára að aldri.

Casillas fékk hjartaáfall á æfingu hjá Porto í maí í fyrra en hann sneri aftur til æfinga síðastliðinn vetur.

Casillas náði þó ekki að spila í portúgölsku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili.

Á ferli sínum vann Casillas fjölmarga titla með uppeldisfélagi sínu Real Madrid en hann gekk síðan í raðir Porto árið 2015.

Þá vann Casillas HM 2010 sem og EM 2008 og 2012 með spænska landsliðinu.


Athugasemdir
banner
banner
banner