Fotbolti.net
04.08.20 - 08:00
Brynjar Ingi Erluson
Ítalski boltinn

Óvíst hvort Insigne spili gegn Barcelona

Lorenzo Insigne

Lorenzo Insigne

Canon

Mynd: Getty Images

Lorenzo Insigne, leikmaður Napoli á Ítalíu, er í kappi við tímann um að ná leiknum gegn Barcelona í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu.
Napoli og Barcelona eigast við í 8-liða úrslitum á laugardag en Insigne meiddist í 3-1 sigrinum á Lazio í lokaumferðinni á Ítalíu.

Hann skoraði úr vítaspyrnu í leiknum en fór af velli á 84. mínútu og voru niðurstöður úr rannsóknum ekki góðar.

Það er óvíst hvort hann nái leiknum gegn Barcelona á laugardaginn en það yrði mikil blóðtaka fyrir Napoli ef hann verður ekki með.

Liðin gerðu 1-1 jafntefli á San Paolo leikvanginum í febrúar en síðari leikurinn fer fram á Nou Camp.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.