fim 04. ágúst 2022 19:53
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Azpilicueta framlengir við Chelsea (Staðfest)
Mynd: Getty Images

Hinn 32 ára gamli Cesar Azpilicueta hefur skrifað undir nýjan samning við Chelsea sem gildir til ársins 2024.


Þessi spænski hægri bakvörður var mikið orðaður við Barcelona í sumar en hann fer ekki neitt.

„Við erum svo ánægð að Cesar verði áfram hjá Chelsea í að minnsta kosti tvö ár. Við erum í skýjunum með að sjá fyrirliðann sýna skuldbindingu enn og aftur, það er enn nóg sem við getum gert saman," sagði Todd Bohely eigandi Chelsea.

Azpilicueta gekk til liðs við Chelsea frá franska liðinu Marseille en hann hefur leikið 324 leiki fyrir enska félagið. Hann hefur verið fyrirliði liðsins frá tímabilinu 2019/20.

Hann hefur tvisvar orðið enskur meistari, unnið Meistaradeildina einu sinni og Evrópudeildina tvisvar.


Athugasemdir
banner
banner
banner