Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 04. ágúst 2022 21:19
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Besta deild kvenna: Málfríður tryggði Stjörnunni sigur í uppbótartíma
Málfríður
Málfríður
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KR 1-2 Stjarnan
1-0 Ísabella Sara Tryggvadóttir ('23)
1-1 Katrín Ásbjörnsdóttir ('51)
1-2 Málfríður Erna Sigurðardóttir ('90)


KR og Stjarnan áttust við í 12. umferð Bestu deildar kvenna í kvöld. Fyrir leikinn var KR í fællsti, þremur stigum frá öruggu sæti. Stjarnan var í 3. sæti fjórum stigum á eftir Breiðabliki sem situr í 2. sæti.

KR var marki yfir í hálfleik þar sem Ísabella Sara Tryggvadóttir kom liðinu yfir um miðjan fyrri hálfleikinn.

Katrín Ásbjörnsdóttir jafnaði metin snemma í síðari hálfleik þegar boltinn fór í hana eftir aukaspyrnu frá Gyðu Kristínu Gunnarsdóttur.

Málfríður Erna Sigurðardóttir tryggði Stjörnukonum stigin þrjú þegar hún potaði boltanum í netið frá fjærstönginni eftir hornspyrnu.


Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner