Fotbolti.net
04.08.26 - 09:30
Elvar Geir Magnússon

Fleiri lönd draga stuðning við Infantino til baka

Fleiri lönd draga stuðning við Infantino til baka
Canon

Mynd: EPA

Fleiri evrópsk aðildarlönd FIFA hafa ákveðið að snúa formlega baki við Gianni Infantino. England og Serbía hafa nú fylgt Wales, Svíþjóð og Finnlandi sem hafa ákveðið að draga stuðning við forsetann til baka.
Grátbiður Trump um að bjarga starfi sínu
TENGT EFNI

Grátbiður Trump um að bjarga starfi sínu

„Mistök sem nýlega hafa átt sér stað varðandi stjórnarhætti, verkferla, forystu, gildi, samskipti við hagsmunaaðila, upplýsingamiðlun og skynsamlega dómgreind hafa leitt til þess að Infantino nýtur ekki lengur trausts velska sambandsins til að standa í brúnni í alþjóðlegum fótbolta. Að setja ekki hagsmuni fótboltans í fyrsta sæti eru mistök sem við getum ekki sætt okkur við," sagði í yfirlýsingu Wales.

Victor Montagliani, forseti Concacaf, þykir samkvæmt Guardian líklegastur til að taka við af Infantino ef hann verður látinn víkja. Talið er að Montagliani sé sammála forystum evrópska sambandsins UEFA og asíska sambandsins um að þörf sé á nýrri forystu hjá FIFA.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.