04.09.14 - 21:09
Hafliði Breiðfjörð
Davíð Snorri: Það er komið (Staðfest) á þetta
Auglýsing

Davíð Snorri fagnar í klefanum eftir leik.

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

,,Þetta er geðveikt, þetta er geðveikt,\" sagði Davíð Snorri Jónasson annar þjálfara Leiknis í mikilli geðshræringu eftir að liðið tryggði sér sæti í Pepsi-deildinni með 2-1 sigri á Þrótti í kvöld.
,,Síðan síðasti leikur kláraðist vorum við alltaf að fara að klára þetta hér, það er alveg klárt. Það sem gleður mann mest er að sjá allt fólkið sem er búið að leggja á sig alla þessa vinnu undanfarin ár gleðjast í dag. Þetta er búin að vera algjör þrautaganga í mörg ár og það gleður mig mest.\"
Þetta er yndislegt, strákarnir og fólkið hérna er búið að vinna svo fyrir þessu. Þetta er fokking geðveikt. Þetta hafðist, YES, við erum búnir að leggja svo á okkur. Það er komið (Staðfest) á þetta. Við erum búnir að bíða að eftir að fá (Staðfest) á þetta og það kom í kvöld. Fólkið og hverfið. Við eigum þetta öll skilið.\"
Nánar er rætt við Davíð Snorra í sjónvarpinu í kvöld en hann segir að menn muni sleppa sér í fögnuðinum í kvöld en svo hefjist undirbúningur að því að reyna að vinna deildina.