04.09.14 - 09:00
Elvar Geir Magnússon
Freyr Alexandersson: Partí fram í næstu viku ef við vinnum
Auglýsing

Davíð Snorri Jónasson og Freyr Alexandersson, þjálfarar Leiknis.

Mynd: Ingólfur Hannes Leósson

Leiknir getur komist í fyrsta sinn upp í efstu deild í kvöld þegar liðið mætir Þrótti á Leiknisvelli klukkan 18:00. Ljóst er að með jafntefli verður hægt að setja (Staðfest) við Pepsi-deildina hjá Breiðhyltingum þó tvær umferðir verði eftir.
Fótbolti.net ræddi við Frey Alexandersson, annan þjálfara Leiknis.
„Það er stór dagur framundan og við erum mjög spenntir og vel undirbúnir fyrir verkefni kvöldsins. Við höfum gert það í allt sumar að fara í alla leiki til að vinna og þessi leikur er engin undantekning. Við erum á heimavelli og búumst við fullum velli. Við setjum kröfu á okkur sjálfa að vinna þegar við erum á heimavelli,\" segir Freyr.
Hann segir að vel hafi tekist að halda spennustigi leikmanna réttu.
„Það hefur gengið vel. Það er ró yfir mannskapnum en samt gríðarlegt hungur. Það var svekkelsi að klára þetta ekki í Ólafsvík því það var tækifæri til þess. Okkur langar að klára þetta í kvöld og mætum mjög vel undirbúnir og ætlum að njóta dagsins.\"
„Ef spennustigið fer of hátt upp verðum við í vandræðum því Þróttaraliðið er mjög vel skipulagt og vel spilandi.\"
„Þessi dagur verður vonandi eftirminnilegur en þetta er ekki bara dagurinn í dag. Þetta er löng saga og það er búið að vinna hörðum höndum að þessu í mörg ár. Margir hafa komið að þessu og nú er undir okkur komið að klára þetta.\"
„Ef við vinnum í kvöld verður partí í Breiðholti sennilega fram á næstu viku en það er undir okkur komið að það verði að veruleika.\"
Viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan.