Fotbolti.net
04.09.26 - 12:14
Elvar Geir Magnússon

Alvarez „reynslunni ríkari“ eftir stormasama daga

Alvarez á æfingu með Atletico í vikunni.

Alvarez á æfingu með Atletico í vikunni.

Canon

Mynd: EPA

Julian Alvarez snýr aftur í leikmannahóp Atletico Madrid sem mætir Athletic Bilbao í spænsku deildinni á morgun.

Alvarez vildi fara til Barcelona í glugganum en varð ekki að ósk sinni. Hann missti af tveimur æfingadögum eftir að Atletico tjáði honum að félagið myndi ekki selja hann til Börsunga.

Alvarez var ekki með Atletico gegn Sevilla um síðustu helgi en hefur æft undanfarna daga.
„Julian Alvarez verður í hópnum á morgun. Hann æfir vel og við búumst við því besta frá honum, rétt eins og við gerum frá öllum leikmönnum," segir Diego Simeone, stjóri Atletico.

„Fyrir mér er lífið fullt af tækifærum. Og Julian hefur nú tækifæri. Ég vona að hann hafi lært mikið af þessari atburðarás. Ég vona að hann sýni að hann sé ánægður með því að skora mörk."

Atletico sendi frá sér tvær opinberar yfirlýsingar á sólarhring þar sem félagið ítrekaði afstöðu sína um að Alvarez myndi ekki fá ósk sína uppfyllta um að ganga til liðs við keppinautana í Barcelona. Atletico var hins vegar opið fyrir því að selja Alvarez til Arsenal og viðræður áttu sér stað en ekkert varð af skiptum.

Alvarez hefur skorað 49 mörk í 107 leikjum fyrir Atletico síðan hann kom frá Manchester City fyrir 81 milljón punda árið 2024, en hefur enn ekki unnið neinn titil í Madrid.

Áhugavert verður að sjá hvaða viðbrögð Alvarez mun fá frá stuðningsmönnum Atletico á morgun en líklegt er að hann þurfi að vinna fyrir því að fá þá aftur á sitt band. Baulað var á hann í leik á dögunum.
Áhugavert verður að sjá hvaða viðbrögð Alvarez mun fá frá stuðningsmönnum Atletico.

Áhugavert verður að sjá hvaða viðbrögð Alvarez mun fá frá stuðningsmönnum Atletico.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.