04.09.26 - 12:47
Elvar Geir Magnússon
Hver verður fremstur hjá Everton ef hann er ekki til staðar?

Thierno Barry í baráttunni.

Mynd: EPA

Tyrique George.

Mynd: Everton

Thierno Barry í baráttunni.

Mynd: EPA
„Við þurfum fleiri leikmenn. Hópurinn er ekki nógu stór," sagði David Moyes, stjóri Everton, áður en glugganum var lokað. Félagaskiptaglugginn endaði svo eins illa og hugsast getur fyrir Everton.
Folarin Balogun hætti á síðustu stundu við að fara til Everton sem hafði þá þegar losað Beto. Eftir stendur David Moyes með aðeins einn leikmann sem spilar sem fremsti maður.

TENGT EFNI
Eigendur Everton finna fyrir reiði stuðningsmanna
Það er Thierno Barry, sem hefur skorað 9 mörk í 40 deildarleikjum. Hann mun ekki fá neina alvöru samkeppni fyrr en í janúarglugganum í fyrsta lagi, ekki nema Everton sæki félagslausan leikmann.
En hver mun spila fremstur ef Barry er ekki til staðar?
„Mér er sagt að varasóknarmaðurinn verði Tyrique George. Hann hefur hingað til spilað á vinstri kanti en spilaði fremstur þegar hann kom upp hjá Chelsea," segir Giulia Bould, íþróttafréttamaður BBC.
„Brennan Johnson hefur einnig spilað sem fremsti maður og gæti gefið Moyes annan möguleika."
Stuðningsmenn Everton eru margir hverjir verulega ósáttir og þar á meðal er hlaðvarpsstjórnandinn Mike Richards.
„Eigendur félagsins hafa brugðist stjóranum algjörlega. Það sem er óskiljanlegast er að láta Beto fara til Fiorentina þegar það var ekki tryggt að það kæmi annar sóknarmaður inn," segir Richards.