Fotbolti.net
04.09.26 - 10:35
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Fyrirliði Leiknis: Auðvitað væri sætt að ná að fella ÍR

Daði Bærings er fyrirliði Leiknis. Hann hefur leikið með Leikni eða venslaliðinu, KB, allan sinn feril.

Daði Bærings er fyrirliði Leiknis. Hann hefur leikið með Leikni eða venslaliðinu, KB, allan sinn feril.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Lengjudeildin
Á morgun klukkan 14:00 tekur ÍR á móti Leikni á Þarfaþingsvellinum í nágrannaslag.

Það er mikið undir í leiknum, montrétturinn í Breiðholti og í ofan á lag má ÍR ekki tapa því þá gæti liðið fallið úr Lengjudeildinni. ÍR fellur ef liðið tapar, Grindavík sigrar Ægi og Völsungur sigrar Gróttu.

Daði Bærings Halldórsson er fyrirliði Leiknis og hann ræddi við Fótbolta.net.
Lífsbaráttu laugardagur í Lengjunni - Þrjú lið í hættu
TENGT EFNI

Lífsbaráttu laugardagur í Lengjunni - Þrjú lið í hættu

Þarf ekki að mótivera menn fyrir grannaslag
„Leikurinn gegn ÍR leggst bara ofboðslega vel í mig, það ætti að verða góð stemning í stúkunni og mikil læti þannig þetta verður bara veisla vonandi," segir Daði.

„Þetta er náttúrulega grannaslagur og það þarf ekki að mótivera menn neitt fyrir það. Við förum með plan inn í alla leiki til þess að vinna og það verður ekkert öðruvísi fyrir þennan leik. Við þurfum bara að spila okkar leik. Ef við gerum það sem við viljum gera vel þá er helvíti erfitt að spila á móti okkur þannig við þurfum fyrst og fremst að fókusa á okkur og vera tilbúnir í slaginn."

Ekkert hægt að ljúga því
Sú staðreynd að ÍR getur fallið á morgun, spáið þíð í því fyrir leikinn?

„Auðvitað væri það sætt að ná að fella ÍR í lokaumferð, það er ekkert hægt að ljúga því. Ég býst við slatta að Leiknisfólki sem mun koma á völlinn og vilja sjá það líka. Einnig fullt af ÍR-ingum sem vilja ekki sjá þetta gerast þannig býst við alvöru látum í stúkunni."

Stígandi frá síðustu árum
Það er ljóst að Leiknir enda í 6.-8. sæti í deildinni. Hvernig metur þú tímabilið?

„Tímabilið er bara búið vera upp og niður. Auðvitað hefðum við viljað vera berjast um sæti í umspilinu og auðvitað er maður ósáttur að vera ekki nær því, en ef maður tekur skref til baka og fer yfir tímabilið þá finnst manni vera mikill stígandi í liðinu frá síðustu árum og maður er sáttur við það og það þarf að halda áfram að byggja ofan á það."

„Ég er bara helst ánægður með hugarfarið hjá leikmönnum, sama hvað gekk á voru menn ekkert að panikka eða fara í einhverja vörn eða benda á hvorn annan, menn voru bara að bakka hvorn annan upp og staðráðnir í að gera þetta saman."

„Það hefði verið gaman að skora fleiri mörk því mörk breyta leikjum og það voru leikir þar sem boltinn vildi ekki inn og það kom í bakið á okkur."


Daði var í banni í síðasta leik og er klár í slaginn fyrir morgundaginn.

„Ég er klár, aldrei verið betri. Var í banni á móti Njarðvík og strákarnir voru frábærir í þeim leik og vonandi fáum við sömu frammistöðu á morgun."

Synd að fólk var ekki opnara fyrir sameiningunni
Hver var og er þín skoðun þegar rætt er um mögulega sameiningu Leiknis og ÍR?

„Mín skoðun á sameiningunni er bara að það þarf ekki einu sinni að hugsa þetta. Ef við hugsum um krakkana í hverfinu þá er þetta augljóslega best fyrir þau. Þannig það var smá synd að sjá fólk væri ekki opnara fyrir þessu."

Gerum þennan dag geðveikan
Að lokum, ertu með skilaboð til stuðningsmanna?

„Leiknisfólk gerum þennan dag geðveikan, við leikmenn munum leggja allt í þetta og við búumst við því sama frá ykkur. Við erum búin að eiga Breiðholtið í helvíti mörg ár og ætlum að halda því áfram, lets go!" segir Daði að lokum.

Úr fyrri leik liðanna.

Úr fyrri leik liðanna.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Leiknir endar í 6.-8. sæti deildarinnar.

Leiknir endar í 6.-8. sæti deildarinnar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Einnig fullt af ÍR-ingum sem vilja ekki sjá þetta gerast þannig býst við alvöru látum í stúkunni

Einnig fullt af ÍR-ingum sem vilja ekki sjá þetta gerast þannig býst við alvöru látum í stúkunni

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Finnst vera stígandi frá síðustu árum.

Finnst vera stígandi frá síðustu árum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Afturelding21+3345
2Þróttur R.21+2340
3Fylkir21+1440
4HK21+1135
5Njarðvík21+835
6Leiknir R.21+228
7Grótta21-527
8Vestri21-1127
9ÍR21-725
10Grindavík21-1024
11Völsungur21-1423
12Ægir21-448
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.