Fotbolti.net
04.09.26 - 17:30
Elvar Geir Magnússon

Skilur samlíkinguna við Rodri

Skilur samlíkinguna við Rodri
Canon

Mynd: Brighton

Spænski miðjumaðurinn Chema Andres gekk í raðir Brighton frá Stuttgart en þessum 21 árs leikmanni hefur verið líkt við Rodri, fyrirliða heimsmeistara Spánar.
„Nýi Rodri“ til Brighton (Staðfest)
TENGT EFNI

„Nýi Rodri“ til Brighton (Staðfest)

„Ég skil samlíkinguna við Rodri. Þegar maður horfir á hvernig hann leikmaður hann er og hvernig hann hreyfir sig þá eru alveg líkindi. En Rodri er einn besti leikmaður heims svo það er löng vegferð framundan fyrir Andres en við munum reyna að hjálpa honum á henni," segir Fabian Hurzeler, stjóri Brighton.

„Þessi strákur er frábær karakter og hann vill bæta sig á hverjum degi. Hann kom hingað og vildi strax fara út á völl og æfa sig með boltann. Maður sér það strax að hann hefur mikinn metnað. Hann vill afreka hluti."

„Ég skil líkinguna við Rodri en það er mikið verk óunnið og vonandi kemst hann þangað einn daginn. Það yrði stórt fyrir okkur og einnig fyrir fótboltann í heild sinni!"

Brighton mætir Leeds í ensku úrvalsdeildinni á morgun.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Man City2+46
2Arsenal2+46
3Hull City2+36
4Chelsea2+26
5Brentford2+34
6Newcastle2+24
7Everton2+24
8Leeds2+14
9Brighton2+33
10Man Utd2+13
11Sunderland203
12Ipswich Town2-23
13Liverpool202
14Bournemouth2-11
15Nott. Forest2-11
16Fulham2-20
17Coventry2-40
18Crystal Palace2-50
19Aston Villa2-50
20Tottenham2-50
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.