„Ekki fræðilegur möguleiki að ég væri að fara að enda ferilinn í svartamyrkri og ógeðslegu frosti"


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Var í leikmannahópnum gegn Fram, í hópnum í fyrsta sinn á tímabilinu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hallgrímur Mar í Völsungstreyju en Hrannar í Beckham.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það hafa margir komið að tali við mig síðustu mánuði og haldið að ég væri ekki að fara að taka þátt í neinum leik á þessu tímabili.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Sævar skrifaði undir samning á mánudegi, en mun aldrei gera það aftur.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Þessi hópur er mjög samheldinn og hver einasti kjaftur er staðráðinn í að gera allt sem í okkar valdi stendur til að halda okkur í þessari deild

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KA náði í gott stig á móti Fram í síðustu umferð.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ég væri pottþétt meira stressaður en spenntur ef ég sjálfur þyrfti að vera uppi í stúku og horfa en það er ekkert nema tilhlökkun núna

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson


Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Spilaði síðast undir lok síðasta tímabil.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ég hef alltaf verið harður Beckham maður

Mynd: EPA

Ef þú ert ekki til í að hlusta og taka við ábendingum frá honum, þá geturu bara farið að gera eitthvað annað

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hrannar og Ásgeir Sigurgeirsson eru komnir aftur í leikmannahóp KA eftir meiðsli.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ég gleymi aldrei svipnum á honum þegar hann áttar sig á því, það var hræðilegt.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hann er mikill KA maður, hefur verið hjá félaginu hjá 2014 og varð bikarmeistari með liðinu 2024. Hann er 34 ára og var á krossgötum eftir síðasta tímabil. Hann ætlaði sér ekki að halda áfram í KA en ákvað að taka slaginn. Rétt eftir að hann tók þá ákvörðun sleit hann hásin.
Hrannar ræddi við Fótbolta.net.
„Já, ég er orðinn leikfær. Ég er búinn að æfa hverja einustu æfingu frá upphafi til enda í 3-4 vikur og líður mjög vel. Ég var vel meðvitaður fyrstu æfingarnar og passaði mig í öllum sprettum og stefnubreytingum en ég er kominn yfir þann hjalla og klár í að spila."
„Ég vonaðist að sjálfsögðu til í að koma eitthvað inn á en ég er ekki á fyrsta árinu í þessu og áttaði mig fullvel á því eftir 15 mínútur þegar við neyddumst í tvöfalda breytingu að líkurnar væru ekki að vinna með mér verandi nýkominn til baka eftir hásinaslit. En ég var ekkert að grenja það samt, mér finnst bara gott að vera mættur aftur í hóp og ef ég er ekki inni á vellinum geri ég mitt besta í að hjálpa liðinu utan hans," segir Hrannar.
Lærði af síðasta endurkomuferli
Hvernig hefur endurhæfingin gengið? Það eru ekki svo mörg síðan þú varst að jafna þig eftir krossbandsslit. Tókstu eitthvað úr þeirri endurhæfingu?
„Ég man þegar ég var uppi á sjúkrahúsi og hringdi í konuna til að segja henni að hásinin væri farin. Henni fannst það auðvitað mjög leiðinlegt fyrir mig en svo var hún fljót að spyrja hvort þetta yrði nokkuð eins og þegar ég sleit krossbandið. Það var nefnilega helvíti þungt yfir mér í tvo svarta vetrarmánuði þegar ég var í þeirri endurhæfingu og það bitnaði mest á henni heima fyrir og ég tók mikið frá þeim tíma og yfir í þetta ferli. Ég var staðráðinn í að þetta yrði ekki eins núna og þetta hefur bara gengið vel og eiginlega framar vonum ef ég á að vera alveg heiðarlegur."
Staðráðinn í að ná leik
Hrannar hélt áfram:
„Það hafa margir komið að tali við mig síðustu mánuði og haldið að ég væri ekki að fara að taka þátt í neinum leik á þessu tímabili. Ég er samt búinn að vera með það í hausnum frá upphafi að ég ætlaði mér að spila einn leik í sumar, sama hversu margar mínútur ég fengi. Ég var í hóp í síðasta leik og þá voru sjö leikir eftir þannig ég er mjög sáttur með hvernig þetta hefur allt blessast."
Sævar mun aldrei aftur skrifa undir á mánudegi
Þú varst að íhuga þína framtíð eftir síðasta tímabil og varst nýbúinn að ná saman með KA um að halda áfram þegar þú sleist, hugsaðiru að það væru einhver skilaboð að ofan?
„Ég var búinn að tilkynna stjórn KA og þjálfurum um haustið að ég yrði ekki áfram og vildi koma mér í nýtt umhverfi eða bara jafnvel hætta í fótbolta og var 100% á því að ég væri búinn að æfa mína síðustu æfingu með félaginu. Ég var kominn með smá ógeð á því að vera í fótbolta og ætlaði bara að leyfa vikunum og mánuðunum að líða áður en ég myndi ákveða eitthvað, var ekki að drífa mig neitt."
„Ég ræddi við önnur lið og var nálægt því að semja annars staðar en þetta „drive” til að gera þetta eins og maður sem ég var að bíða eftir að kæmi til mín gerði það bara ekki. Þá var ég ekki að fara að skrifa undir neins staðar, það hefði ekki verið gott fyrir neitt lið og ekki mig sjálfan."
„KA hins vegar létu ekki segjast og ég held ég hafi setið einhverja fimm eða sex fundi þrátt fyrir að hafa verið löngu búinn að tilkynna þeim að ég ætlaði ekki að vera áfram. En ég átti að lokum vægast sagt mjög góðan fund með Sævari (framkvæmdastjóra) og án þess að fara eitthvað dýpra í það spjall, þá var það hann sem snéri mér og ég byrjaði að mæta með strákunum á æfingar í lok janúar."
„Ég skrifaði svo undir á mánudegi í byrjun febrúar og var búinn að slíta hásin 40 mínútum seinna. Sævar hefur aldrei fyrir það skrifað undir neitt á mánudegi og mun ekki gera það eftir þetta," segir Hrannar.
Ekki fræðilegur möguleiki
Eftir að þú sleist, kom ekki til greina að kalla þetta bara fínt, fara þína leið í endurkomunni og segja bless við boltann?
„Nei, alls ekki. Fyrstu mínúturnar eftir að ég slít eru mjög skrítnar samt. Adrenalínið er einhvernveginn á milljón og ég fann engan sársauka, það bara kom hár smellur og ég hélt ég hafi sparkað í grind sem ég var að hoppa yfir. Strákarnir heyrðu og sáu þetta flestir og þeir vissu að eitthvað alvarlegt hafi komið fyrir, þá lem ég bara í grasið, segi að hásinin sé slitin og bið strákana að hjálpa mér á fætur. Svo þegar ég er kominn upp á sjúkrahús og leggst niður og hugsa aðeins um þetta kom svekkelsið upp en það var fljótt að snúast í það að það væri ekki fræðilegur möguleiki að ég væri að fara að enda ferilinn í svartamyrkri, ógeðslegu frosti á gervigrasi í febrúar," segir Hrannar.
„Gat ekki einbeitt mér mikið restina af æfingunni"
Skiptum aðeins yfir í viðtal sem Fótbolti.net tók við bróður Hrannar, Hallgrím Mar Steingrímsson, í vetur. Hann var þá spurður út í ákvörðun bróður síns.
„Ég var svo ánægður með að fá hann aftur á æfingar, hann er ekki bara frábær leikmaður, heldur er hann frábær í klefa, er mikill leiðtogi og hefur mikla rödd. Það fannst öllum mjög ánægjulegt að sjá hann aftur mæta á æfingar af því það leit ekkert endilega út fyrir að hann yrði áfram. Svo korter eftir að hann skrifar undir samning mætir hann á æfingu og slítur hásin. Það var mikið högg fyrir hópinn, og mér fannst þetta ömurlegt," sagði Grímsi.
„Ég sá þetta gerast, við vorum að hoppa yfir grindur og í sprettum. Ég heyri smell og hugsa að hann hafi stigið á takkann sinn þega hann var að lenda. Hann hélt að hann hefði hrasað á grindinni og hún dottið - spyr hvort að grindin hafi ekkert dottið. Hann áttar sig svo strax og segir að hún (hásinin) sé farin. Ég gleymi aldrei svipnum á honum þegar hann áttar sig á því, það var hræðilegt. Hann er bróðir minn og besti vinur minn, ég gat ekki einbeitt mér mikið restina af æfingunni.”
Varstu eitthvað að ýta á Hrannar að halda áfram?
„Þegar hann sagði mér að hann væri að hallast að því að halda áfram með KA, þá fór ég að peppa það. En fram að því ákvað ég að gefa honum pláss og leyfa honum að taka ákvörðun í friði; ef hann skyldi ekki vilja það, þá vildi ég ekki vera þrýsta á hann. Ég leyfði þessu að koma til hans. En þegar hann sagði að hann væri líklegur þá fór ég að tala um hversu geggjað það yrði," sagði Grímsi.
Þjálfararnir vita hvað þeir hafa í mér
Aftur að Hrannari sjálfum. KA tekur á móti Breiðabliki í 22. umferð, síðustu umferðinni fyrir tvískiptingu, á sunnudag. Hversu spenntur ertu að komast aftur inn á völlinn?
„Ég er miklu spenntari en ég hélt ég yrði og það er eflaust að mörgu leyti út af stöðunni sem við erum í á þessari stundu. Hörkubarátta framundan næstu vikurnar og ég er ekkert viss um að ég myndi lifa það af ef ég þyrfti að fylgjast með þessu öllu utan frá."
„Ég horfi auðvitað í leikinn gegn Blikum, mig langar bara að spila fótbolta og hjálpa KA eins mikið og ég get og maður hefur mest áhrif inni á vellinum. Þjálfararnir vita fullvel hvað þeir hafa í mér og ég verð klár þegar þeir telja sig þurfa að nota mig, hvort sem það verða 5, 30 eða 90 mínútur."
Hver einasti kjaftur staðráðinn í því
KA er í erfiðri stöðu í deildinni, botnsætinu, hvernig er stemningin? Hvað þarf að gerast til að komast úr þessari stöðu?
„Það eru allir alltaf jafn hissa þegar ég svara þeim þessari spurningu en stemningin er bara mjög góð, þessi hópur er mjög samheldinn og hver einasti kjaftur er staðráðinn í að gera allt sem í okkar valdi stendur til að halda okkur í þessari deild og til þess að það gerist er það bara sama gamla ógeðslega klisjan og ég hálfskammast mín fyrir að segja það en það er bara að þjappa okkur almennilega saman sem við erum byrjaðir að gera og einbeita sér að einum leik í einu, næsti leikur er okkar mikilvægasti leikur í sumar og það verður þannig út mótið."
Ef þú hlustar ekki á hann getur bara gert eitthvað annað
Hvernig finnst þér Eiður Smári hafa komið inn í þjálfarateymið?
„Hann hefur komið frábærlega inn og það kemur mér smá á óvart hvað hann er investaður í þetta og hvað hungrið er mikið. Ég bjóst eðlilega við miklu að fá hann í klefann og út á æfingasvæði en þetta hefur farið fram úr öllum væntingum. Hann er að mínu og auðvitað mjög margra mati langbesti leikmaður sem Ísland hefur alið og ef þú ert ekki til í að hlusta og taka við ábendingum frá honum, þá geturu bara farið að gera eitthvað annað."
Bæði lið langt frá væntingum
Hvernig líst þér á leikinn gegn Breiðabliki? Hvað þurfið þið að gera til að sigra Breiðablik?
„Ég er mjög spenntur fyrir sunnudeginum, það er ekki hægt annað. Ég væri pottþétt meira stressaður en spenntur ef ég sjálfur þyrfti að vera uppi í stúku og horfa en það er ekkert nema tilhlökkun núna. Breiðablik er frábærlega mannað lið og bæði þessi lið langt frá öllum væntingum í sumar og ég á bara von á hörkuleik og vonandi skemmtilegum í leiðinni."
Fólkinu augljóslega ekki sama
Í síðustu útileikjum hefur heyrst vel í stuðningsmönnum KA, hversu mikilvægt er að fá öflugan stuðning á sunnudaginn?
„Það er kannski ágætt að þú minnist á þetta því stuðningsmenn KA í sumar hafa verið mjög öflugir og þá sérstaklega á útivelli finnst mér, það sýnir bara að fólki er langt frá því að vera sama og við skuldum þeim og í raun okkur sjálfum að leggja okkur alla í verkefnið það sem eftir lifir tímabils. Mætingin hér heima hefur líka heilt yfir komið mér á óvart miðað við gengið okkar í sumar en þá segi ég það aftur, fólki er ekki sama og það er komið að okkur að sýna að okkur sé ekki sama. Ég hef enga trú á öðru en að stúkan verði troðin á sunnudaginn og vonandi mun heyrast vel í fólki og við strákarnir fylgjum."
Leikurinn gegn Breiðabliki fer fram á Greifavellinum á sunnudag og hefst klukkan 14:00
Með Beckham flúr á fæti
Að lokum, þú varst mættur í Beckham treyju í Úlfarsárdalinn, var þetta erfitt val?
„Nei í raun ekki. Ég ætlaði vissulega að mæta í Völsungstreyju en það klikkaði af óviðráðanlegum ástæðum þannig ég fór í treyjuskápinn heima og ég á ótal Beckham treyjur og ákvað að velja þá elstu. Ég hef alltaf verið harður Beckham maður, eðlilega, og hann hefur alltaf verið í mestu uppáhaldi hjá allri fjölskyldunni frá því hann kom upp hjá United á sínum tíma. Ég er búinn að láta flúra hann á fótinn á mér og ég á eftir að bæta einhverjum fleirum við hliðina á honum. Finnst ekki ólíklegt að Sir Alex, Cristiano og Rooney fái að fylgja fljótlega," segir Hrannar að lokum.

Var í leikmannahópnum gegn Fram, í hópnum í fyrsta sinn á tímabilinu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hallgrímur Mar í Völsungstreyju en Hrannar í Beckham.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það hafa margir komið að tali við mig síðustu mánuði og haldið að ég væri ekki að fara að taka þátt í neinum leik á þessu tímabili.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Sævar skrifaði undir samning á mánudegi, en mun aldrei gera það aftur.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Þessi hópur er mjög samheldinn og hver einasti kjaftur er staðráðinn í að gera allt sem í okkar valdi stendur til að halda okkur í þessari deild

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KA náði í gott stig á móti Fram í síðustu umferð.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ég væri pottþétt meira stressaður en spenntur ef ég sjálfur þyrfti að vera uppi í stúku og horfa en það er ekkert nema tilhlökkun núna

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson


Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Spilaði síðast undir lok síðasta tímabil.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ég hef alltaf verið harður Beckham maður

Mynd: EPA

Ef þú ert ekki til í að hlusta og taka við ábendingum frá honum, þá geturu bara farið að gera eitthvað annað

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hrannar og Ásgeir Sigurgeirsson eru komnir aftur í leikmannahóp KA eftir meiðsli.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ég gleymi aldrei svipnum á honum þegar hann áttar sig á því, það var hræðilegt.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 21 | +46 | 52 |
| 2 | KR | 21 | +27 | 44 |
| 3 | Fram | 21 | +14 | 44 |
| 4 | Breiðablik | 21 | +3 | 30 |
| 5 | Keflavík | 21 | -4 | 28 |
| 6 | ÍA | 21 | -4 | 27 |
| 7 | Stjarnan | 21 | -8 | 27 |
| 8 | Valur | 21 | -7 | 24 |
| 9 | FH | 21 | -11 | 21 |
| 10 | Þór | 21 | -29 | 18 |
| 11 | ÍBV | 21 | -13 | 17 |
| 12 | KA | 21 | -14 | 17 |
