Fotbolti.net
04.09.26 - 22:16
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Spánn: Svakaleg dramatík í tapi Real Madrid

Spánn: Svakaleg dramatík í tapi Real Madrid
Canon

Mynd: EPA

Betis 1 - 0 Real Madrid
1-0 Troy Parrott ('81 )
1-0 Kylian Mbappe ('90 , Misnotað víti)
Real Madrid tapaði sínum fyrsta leik undir stjórn Jose Mourinho í fjórðu umferð spænsku deildarinnar í kvöld. Liðið heimsótti Real Betis.

Staðan var markalaus í hálfleik en Troy Parrott, lærisveinn Heimis Hallgrímssonar í írska landsliðinu, kom inn á sem varamaður og kom Betis yfir eftir hornspyrnu þegar skammt var til loka leiks.

Carlos Espi kom inn á hjá Real Madrid strax í kjölfarið og skoraði laglegt mark stuttu síðar en markið var dæmt af vegna rangstöðu.

Real Madrid fékk vítaspyrnu í uppbótatíma en Alvaro Valles í marki Betis varði spyrnuna frá Kylian Mbappe. Marc Bartra, varnarmaður Betis, náði frákastinu en hann virtist hafa stigið inn í teiginn áður en Mbappe tók spyrnuna.

VAR komst hins vegar að þeirri niðurstöðu að svo var ekki svo Mbappe fékk ekki að taka spyrnuna aftur.

Bæði lið eru með níu stig í 2. og 3. sæti eftir fjórar umferðir. Barcelona gæti verið eitt á toppnum með sigri á Valencia á sunnudaginn.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Barcelona3+109
2Real Madrid4+79
3Betis409
4Atletico Madrid3+47
5Alaves3+47
6Osasuna3+27
7Sevilla3+16
8Deportivo3+25
9Racing Santander304
10Levante304
11Real Sociedad4-34
12Espanyol3+13
13Athletic3-23
14Getafe3-33
15Villarreal3-12
16Celta4-32
17Valencia3-31
18Vallecano3-41
19Elche3-61
20Malaga3-61
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.