Fotbolti.net
04.09.26 - 20:28
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Emery: Harwood-Bellis fær vonandi tækifæri í Meistaradeildinni

Emery: Harwood-Bellis fær vonandi tækifæri í Meistaradeildinni
Canon

Mynd: Aston Villa

Það vakti athygli að Taylor Harwood-Bellis er ekki í Meistaradeildarhópnum hjá Aston Villa þrátt fyrir að hafa verið keyptur á 30 milljónir punda undir lok félagaskiptagluggans.
Keyptur á 30 milljónir punda en er ekki í Meistaradeildarhópnum
TENGT EFNI

Keyptur á 30 milljónir punda en er ekki í Meistaradeildarhópnum

„Þú ert með auka bónus í Meistaradeildinni - það er ekkert annað en spenna. Ég get ekki beðið eftir því að byrja og sýna að ég geti vonandi sýnt að ég eigi heima á stærsta sviðinu," sagði Harwood-Bellis þegar hann mætti til Villa.

Unai Emery segir að Harwood-Bellis gæti verið skráður í hópinn seinna á tímabilinu.

„Hann var sá síðasti sem við náðum í og við getum fengið jafnvægi með Lamare Bogarde og við getum spilað Boubacar Kamara," sagði Emery.

„Taylor verður hérna lengi og vonandi fær hann tækifæri til að spila í Evrópu með okkur, kannski í janúar og svo næstu árin."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.