Lætur slæma reynslu ekki stoppa sig - „Fæ bara Déjà vu frá því í fyrra“

Frá æfingu Egersund í dag.

Mynd: EGERSUND

Keyptur til Keflavíkur í upphafi árs.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Ég var meðvitaður um umfjöllun um okkur fyrir mót; Að við gætum ekkert og liðið væri ekki að styrkja sig.“

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍBV endaði í 9. sæti á síðasta tímabili eftir að hafa verið spáð falli í öllum miðlum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Þjálfarateymið er frábært og Halli veit alveg hvernig samband okkar er“

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Breki og Hinrik á æfingu Egersund í dag.

Mynd: EGERSUND

Frá æfingu Egersund í dag.

Mynd: EGERSUND
Breki, sem er fæddur árið 2005, gekk í raðir Keflavíkur fyrir tímabil frá Stjörnunni. Hann var í stóru hlutverki á miðjunni í spútnikliði Keflavíkur sem situr nú í 5. sæti deildarinnar.
Fótbolti.net ræddi við Breka í tilefni skiptanna en hann sagði þau hafa gengið hratt fyrir sig.

Breki komið Jónasi rosalega á óvart - Keflavík fær góða prósentu af næstu sölu
„Á slæma reynslu frá því síðast“
Er erfitt að yfirgefa Keflavík á miðju tímabili?
„Vissulega er það alveg spurning að fara út á miðju tímabili og þegar aðdragandinn er svona stuttur. Ég á slæma reynslu frá því síðast þegar það gerðist,“ segir Breki og á þar við um vistaskiptin sín frá Selfossi og út til Lecce á Ítalíu haustið 2023.
Hann var á mála hjá Lecce í einn vetur og gekk þaðan í raðir Stjörnunnar. Hann ræddi um tímann í Lecce við Fótbolta.net fyrir tveimur árum og sagði þar samband sitt við þjálfarann hafa verið þyrnum stráð.
„Ég hefði getað klárað tímabilið með Keflavík og tekið stöðuna þá en ég fékk gott 'gut feeling' um þetta,“ sagði Breki jafnframt.
Lærði línuvörðinn í Garðabæ
Var eitthvað sérstakt sem þú lagðir áherslu á fyrir þetta tímabil?
„Frá síðasta tímabili lagði ég strax vinnu inn og byrjaði að hitta Kjartan styrktarþjálfara reglulega. Og vissulega var ég heppinn að komast í umhverfið i Keflavík miðað við stöðuna mína í félaginu sem ég var í þar á undan. Ég lærði svo sem að taka línuvörðinn þar,“ sagði Breki jafnframt og á þar við um Stjörnuna.
Á sínum tveimur tímabilum samningsbundinn Stjörnunni spilaði Breki einungis þrjá deildarleiki með Garðarbæjarliðinu. Hann var lánaður fyrst til Selfoss og síðar til ÍBV. Í upphafi árs var hann síðar seldur til Keflavíkur.

„Ekki nógu góður fyrir Stjörnuna“ en nú farinn út í atvinnumennsku
Déjà vu frá því í fyrra
Keflavík var spáð falli í flest öllum miðlum fyrir mót. Gengi liðsins hefur verið vonum framar. Var þetta gengi eitthvað sem þú sem leikmaður bjóst við?
„Ég fæ bara Déjà vu frá því í ÍBV í fyrra. Ég var meðvitaður um umfjöllun um okkur fyrir mót; Að við gætum ekkert og liðið væri ekki að styrkja sig.
En aftur á móti fáum við nýjan Ljubba (Ljubicic) fram, Ásgeir í markið, tökum Krajl, Davíð og fleiri sem hafa verið frábærir þannig að sú umræða fellur um sig sjálfa.
Allt frá sjálfboðaliðum og styrktaraðilum til stjórnarinnar er verið að vinna frábært starf í samstarfi við þjálfarateymið og allir eru samstíga. Þjálfarateymið er frábært og Halli veit alveg hvernig samband okkar er.“
Gott að hafa kunnuleg andlit
Nóg er af Íslendingatengingum í Egersund því Hinrik Harðarson er leikmaður liðsins og Haraldur Árni Hróðmarsson er aðstoðarþjálfari. Þá gekk markvörðurinn Marcel Zapytowski í raðir liðsins frá ÍBV fyrr í sumar.
„Það er gott að hafa Hinrik hef spjallað við hann síðan er Marcel hérna sem var með mér í fyrra og Halli í teyminu. Frábært hafa kunnuleg andlit klárlega,“ sagði Breki að lokum.

Keyptur til Keflavíkur í upphafi árs.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Ég var meðvitaður um umfjöllun um okkur fyrir mót; Að við gætum ekkert og liðið væri ekki að styrkja sig.“

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍBV endaði í 9. sæti á síðasta tímabili eftir að hafa verið spáð falli í öllum miðlum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Þjálfarateymið er frábært og Halli veit alveg hvernig samband okkar er“

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Breki og Hinrik á æfingu Egersund í dag.

Mynd: EGERSUND
