04.09.26 - 19:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Norski landsliðsþjálfarinn hraunar yfir Liverpool - „Gangandi martröð"

Stale Solbakken

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Stale Solbakken

Mynd: EPA
Stale Solbakken, landsliðsþjálfari Noregs, er vægast sagt ósáttur með gang mála hjá LIverpool. Solbakken er mikill stuðningsmaður enska liðsins en hann var í viðtali hjá Viaplay.
Liverpool gerði jafntefli gegn Newcastle og Nottingham Forest í fyrstu leikjum deildarinnar en liðið mætir Ipswich í kvöld. Jeremie Frimpong og Milos Kerkez hafa byrjað báða leikina í bakverðinum en Frimpong byrjar á bekknum í kvöld.

„Bakverðirnir eru gangandi martröð varnarlega. Kerkez virðist ekki ná þessu, jafn vel með gamla þjálfarann sinn. Frimpong er með slakar staðsetningar og er betri fram á við en til baka," sagði Solbakken.
„Er Van Dijk á síðustu metrunum? Ég er ekki viss. Hann er klárlega ekki með sama hraðan og áður. Ég er ekki á því að þeir lyfti bikarnum í lok tímabilsins."
Solbakken hefði viljað sjá Liverpool taka miðjumann í sumarglugganum. Hann er ánægður að Gakpo sé áfram hjá félaginu en hann var sterklega orðaður við Man City.
„Það var góð hugmynd að halda Gakpo. Vængmennirnir eru ekki með reynslu sem munu spila meira en þeir gætu viljað. Gakpo er nógu góður fyrir liðið núna. Hann er ekki nógu góður fyrir Liverpool sem ætlar að reyna vinna deildina en þegar þeir ætla að komast í Meistaradeildina er hann nógu góður," sagði Solbakken.
„Hann getur horfið í leikjum. Hann verður að spila fyrir framan Kerkez og þá þarf hann að hlaupa mikið til baka. Það getur tekið mikið af hans jákvæðu þáttum í burtu."