Fotbolti.net
04.10.14 - 23:00
Magnús Már Einarsson

Páll Viðar hættur með Þór (Staðfest)

Páll Viðar hættur með Þór (Staðfest)
Canon

Mynd: Ingólfur Hannes Leósson

Páll Viðar Gíslason er hættur sem þjálfari Þórs en þetta var tilkynnt á lokahófi félagsins í kvöld.
Páll tók við liði Þórs af Lárusi Orra Sigurðssyni í byrjun sumars 2010.

Liðið fór upp í Pepsi-deildina sama ár en féll aftur sumarið 2011. Sama sumar komst liðið í bikarúrslit en tapaði gegn KR.

Þór vann 1. deildina með miklum yfirburðum árið 2012 en eftir að hafa endað í 8. sæti í fyrra endaði liðið í langneðsta sæti Pepsi-deildarinnar í ár með 12 stig.

Nýr þjálfari mun nú stýra Þórsurunum í 1. deildinni næsta sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.