04.10.26 - 16:50
Brynjar Ingi Erluson
Hildur komin á blað hjá Newcastle sem er með fullt hús stiga

Hér má sjá mynd af Hildi opna markareikninginn fyrir Newcastle

Mynd: Newcastle United

Landsliðskonan Hildur Antonsdóttir skoraði sitt fyrsta mark fyrir Newcastle United í 3-0 sigri á Durham í ensku B-deildinni í dag. Newcastle er með fullt hús stiga.
Hildur gekk til liðs við Newcastle frá Madrid CFF í sumar og hefur komið vel inn í liðið. Hún skoraði sitt fyrsta mark fyrir félagið á 34. mínútu gegn Durham.
Jemma Purfield tók hornspyrnu sem markvörður Durham sló út í teiginn. Hildur var fljótust að átta sig og hamraði boltann í þaknetið. Skömmu síðar munaði litlu að hún bætti við öðru marki en Durham tókst með naumindum að bjarga.
Newcastle tvöfaldaði forystuna tæpum hálftíma fyrir leikslok. Hildur fór af velli þegar um sjö mínútur voru eftir og Newcastle bætti svo við þriðja markinu. Þetta var fimmti sigur liðsins í jafnmörgum leikjum og Newcastle er á toppnum með fullt hús stiga.
Fanney Inga Birkisdóttir og Arna Eiríksdóttir voru báðar í byrjunarliði Vålerenga sem gerði 1-1 jafntefli við Rosenborg í norsku úrvalsdeildinni. Fanney stóð í markinu og Arna lék í miðverðinum en Selma Sól Magnúsdóttir var ekki í hópi Rosenborg.
Rosenborg er í þriðja sæti með 38 stig en Vålerenga sæti neðar með 35 stig.

Quickest to react ??
— Barclays Women's Super League (@BarclaysWSL) October 4, 2026
Hildur Antonsdóttir buries the rebound! ????#BarclaysWSL2 | @NUFCWomen pic.twitter.com/gVZZR4JcPU