04.11.15 - 22:25
Arnar Geir Halldórsson
Chris Ramsey rekinn frá QPR (Staðfest)

Atvinnulaus

Mynd: Getty Images

Atvinnulaus

Mynd: Getty Images
Chris Ramsey hefur verið rekinn úr starfi sem knattspyrnustjóri QPR. Frá þessu var greint í kvöld.
Þessi ákvörðun var tekin í kjölfarið af 1-0 tapi QPR gegn Derby í Championship deildinni í gærkvöldi en QPR er í 15.sæti deildarinnar.
Ramsey gerði þriggja ára samning við QPR síðastliðið vor eftir að hafa tekið við liðinu til bráðabirgða þegar Harry Redknapp var rekinn í upphafi þessa árs.
QPR féll úr úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð en þrátt fyrir að halda sterkum leikmönnum á borð við Charlie Austin, Leroy Fer og Sandro hefur liðinu ekki tekist að komast á flug í Championship deildinni.
Neil Warnock, fyrrum stjóri félagsins, mun stýra liðinu þar til að nýr stjóri verður ráðinn til frambúðar en Warnock var ráðinn til QPR sem tæknilegur ráðgjafi á dögunum.