Fotbolti.net
04.11.21 - 10:33
Elvar Geir Magnússon

Arnór Gauti snýr aftur í Fylki og framlengir (Staðfest)

Arnór Gauti snýr aftur í Fylki og framlengir (Staðfest)
Canon

Mynd: Raggi Óla

Sóknarmaðurinn Arnór Gauti Ragnarsson hefur snúið aftur til Fylkis eftir lánsdvöl hjá Aftureldingu í Mosfellsbæ á þessu ári.

Hann hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Fylki.
Arnór sem er 24 ára hefur leikið 147 leiki í deild og bikar hérlendis og skoraði í þeim 36 mörk. Hann er fyrrum leikmaður Breiðabliks, ÍBV og Selfoss.

Hann lék með uppeldisfélagi sínu Aftureldingu í Lengjudeildinni á liðnu sumri og skoraði þar tíu mörk í fimmtán leikjum.

„Það er fagnaðarefni að þessi öflugi leikmaður taki slaginn með okkur á komandi tímabil!" segir í tilkynningu Fylkis.

Fylkir féll úr efstu deild í sumar en Rúnar Páll Sigmundsson gerði nýjan samning við Árbæjarfélagið og stýrir því áfram.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.