Fotbolti.net
04.12.13 - 17:30
Magnús Már Einarsson

Gjoko Ilijovski ráðinn þjálfari Hattar (Staðfest)

Gjoko Ilijovski ráðinn þjálfari Hattar (Staðfest)
Canon

Mynd: Höttur

Gjoko Ilijovski var á dögunum ráðinn þjálfari Hattar á Egilsstöðum en Austurfrétt greindi frá þessu.

Þessi 43 ára gamli Makedóníumaður skrifaði undir eins árs samning við félagið en við sama tækifæri framlengdi Sigríður Baxter samning sinn um þjálfun kvennaliðsins
Gjoko lék með Hetti 1999 og svo aftur 2005-2006 þar sem hann þjálfaði einnig yngri flokkana.

Síðastliðið sumar þjálfaði Gjoko einnig yngri flokka Hattar en í tilkynningu frá félaginu segir að hann þekki mjög vel til allra leikmanna liðsins því hann hafi annað hvort þjálfað þá í yngri flokkum eða spilað með þeim í meistaraflokki.

Höttur féll úr 2. deildinni í sumar eftir fall úr 1. deild ári áður en liðið mun því leika í 3. deild næsta sumar.

Heimild: Austufrétt

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.