Fotbolti.net
04.12.13 - 23:31
Brynjar Ingi Erluson

Ragnar Hauksson ráðinn þjálfari Völsungs (Staðfest)

Ragnar Hauksson

Ragnar Hauksson

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Völsungur í 2. deild karla hefur ráðið Ragnar Hauk Hauksson sem þjálfara liðsins fyrir komandi tímabil, en þetta kom fram á heimasíðu félagsins í kvöld.
Ragnar tekur við liðinu frá og með undirskriftinni, en hann mun stýra liðinu í Kjarnafæðismótinu sem fer fram í Boganum í janúar.

Fótbolti.net greindi frá því í gær að Ragnar væri að taka við liðinu, en nú er allt klappað og klárt fyrir komandi leiktíð.

Ragnar hefur komið að þjálfun áður, en hann hefur þjálfað 2. flokkinn hjá Þór ásamt því að þjálfa KS/Leiftur í tvö ár.

Ragnar á þá magnaðan feril sem leikmaður einnig, en hann lék með KS, KS/Leiftri, KF, ÍA, Dalvík/Reyni og Magna meðal annars. Hann skoraði 139 mörk á Íslandsmóti á ferlinum.

Völsungur leikur í 2. deild karla eftir að hafa fallið um deild í sumar, en Dragan Stojanovic var látinn taka poka sinn í sumar og tók þá Vilhjálmur Sigmundsson við liðinu út sumarið.

Heimild: Volsungur.is

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.