Fotbolti.net
04.12.15 - 17:06
Magnús Már Einarsson

Hallgrímur Mar í KA (Staðfest)

Mættur aftur í KA.

Mættur aftur í KA.

Canon

Mynd: KA

KA hefur keypt kantmanninn Hallgrím Mar Steingrímsson í sínar raðir frá Víkingi R.

Hallgrímur skrifaði undir fjögurra ára samning við KA á fréttamannafundi á Akureyri nú rétt í þessu.
Hallgrímur Mar er öllum hnútum kunnugur hjá KA en hann spilaði með liðinu frá 2009 þar til í fyrravetur þegar hann gekk til liðs við Víking.

Hallgrímur skoraði fjögur mörk í fjórtán leikjum í Pepsi-deildinni á síðasta tímabili eftir að hafa misst af byrjun móts vegna meiðsla.

Hinn 25 ára gamli Hallgrímur er uppalinn í Völsungi en hann hefur skorað 31 mark í 143 deildar og bikarleikjum með KA á ferli sínum.

Hallgrímur var áður algjör lykilmaður hjá KA og hann mun reyna að hjálpa liðinu að komast upp úr 1. deildinni næsta sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.