Fotbolti.net
04.12.15 - 13:30
Magnús Már Einarsson

Jimmy Floyd Hasselbaink tekur við QPR (Staðfest)

Hasselbaink og Eiður fagna marki.

Hasselbaink og Eiður fagna marki.

Canon

Mynd: Getty Images

Jimmy Floyd Hasselbaink, fyrrum framherji Chelsea, hefur verið ráðinn stjóri QPR en hann kemur til félagsins frá Burton Albion.

Neil Warnock hefur stýrt QPR tímabundið undanfarnar vikur eftir að Chris Ramsey var rekinn.
Hasselbaink, sem lék 23 landsleiki fyrir Holland á sínum tíma, gerði frábæra hluti sem stjóri Burton og vann D-deildina í fyrsta sinn í sögu félagsins á sínu fyrsta tímabili þar.

Annað tímabil Hasselbaink við stjórnvölinn hófst í haust þegar Burton tók sín fyrstu skref í C-deildinni.

Nú eru 20 umferðir búnar af tímabilinu og Burton er með tveggja stiga forystu á toppi deildarinnar en félagið þarf nú að finna nýjan stjóra til að fylla skarð Hasselbaink.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.