Fotbolti.net
04.12.15 - 15:09
Elvar Geir Magnússon

Per Rud hættir óvænt í Þrótti (Staðfest) - Fer til HB Köge

Daninn Per Rud.

Daninn Per Rud.

Canon

Mynd: Getty Images

Daninn Per Rud sem var í október ráðinn yfirmaður knattspyrnumála hjá Þrótti hættir hjá félaginu frá og með 1. mars af persónulegum ástæðum.

Danskir fjölmiðlar sögðu frá því í morgun að hann myndi taka við sem yfirmaður knattspyrnumála hjá HB Köge sem er í dönsku B-deildinni.

Þróttur komst upp í Pepsi-deildina á liðnu tímabili með því að enda í 2. sæti 1. deildarinnar.
Af heimasíðu Þróttar:
Per Rud, yfirmaður knattspyrnumála og yfirþjálfari hjá Þrótti Reykjavík, hefur sagt upp samningi sínum við Þrótt af persónulegum ástæðum og mun láta af störfum hjá félaginu frá og með 1. mars 2016. Per tók við starfi sínu í haust og hafnaði þá álitlegum tilboðum víðs vegar að, en nú hefur honum verið boðið starf nærri heimili sínu sem yfirmaður knattspyrnumála hjá danska 1. deildarliðinu HB Köge. Því félagi hefur hann áður stýrt með góðum árangri.

Þrátt fyrir stuttan starfstíma hjá Þrótti hefur koma hans verið mikill fengur fyrir félagið og hefur hann leitt stefnumótunarvinnu félagsins með góðum árangri. Félagið mun njóta starfskrafta hans næstu mánuði og ráðgjafar við uppbyggingu Þróttar í framtíðinni, auk þess sem unnið verður að formlegu samstarfi Þróttar og HB Köge á ýmsum sviðum.

Þó mikill missir sé af Per fyrir Þrótt, taldi stjórn félagsins ekki rétt að standa í vegi fyrir því að hann tæki við stjórnartaumum í HB Köge og er honum óskað velfarnaðar á nýjum vettvangi. Ekki liggur fyrir hver eftirmaður Per verður í starfi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.