Fotbolti.net
04.12.15 - 17:30
Magnús Már Einarsson

Pétur Pétursson þjálfar 2. flokk Víkings (Staðfest)

Pétur Pétursson þjálfar 2. flokk Víkings (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hinn reyndi Pétur Pétursson var á dögunum ráðinn þjálfari 2. flokks Víkings R.

Pétur þjálfaði í sumar lið Fram í 1. deildinni en á ferlinum hefur hann meðal annars þjálfað KR og verið aðstoðarþjálfari íslenska landsliðsins.

Pétur hætti með Fram eftir tímabilið en Ásmundur Arnarsson tók við starfi hans þar.
NSÍ Runavík, næstbesta liðið í Færeyjum á nýliðnu tímabili, vildi fá Pétur sem þjálfara og bauð honum starf á dögunum.

„Við vorum í viðræðum við Pétur Pétursson en hann gat ekki komið í ár vegna fjölskyldumála,\" sagði Jens Martin Knudsen við Fótbolta.net í dag en hann starfar hjá NSI Runavík.

Pétur þekkir vel að þjálfa 2. flokk en hann var með sama aldursflokk hjá Breiðabliki í nokkur ár.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.