04.12.15 - 15:26
Magnús Már Einarsson
Real Madrid hent úr spænska konungsbikarnum (Staðfest)

Rafa Benitez tekur Cheryshev af velli.

Mynd: Getty Images

Rafa Benitez tekur Cheryshev af velli.

Mynd: Getty Images
Real Madrid hefur verið hent úr spænska konungsbikarnum fyrir að nota ólöglegan leikmann.
Leikmaðurinn sem um ræðir er Denis Cheryshev en hann skoraði í 3-1 sigri á Cadiz í fyrri leik liðanna í 32-liða úrslitum í vikunni. Þessi rússneski kantmaður átti enn eftir að taka út leikbann frá því á síðustu leiktíð og var því ólöglegur í leiknum.
Cheryshev var á láni hjá Villarreal á síðustu leiktíð og fékk þrjú gul spjöld í spænska bikarnum sem þýðir leikbann.
Síðasta gula spjaldið fékk hann í undanúrslitaleik gegn Barcelona á síðustu leiktíð þar sem Villarreal féll úr leik og tók hann því ekki út bannið á síðustu leiktíð.
Rafael Benitez, þjálfari Real Madrid áttaði sig á mistökunum á meðan leiknum stóð því hann tók Cheryshev af velli í hálfleik.
Það var hins vegar of seint og Real Madrid hefur nú verið hent úr leik í spænska bikarnum á meðan Cadiz fer beint áfram í 16-liða úrsit.