04.12.15 - 14:51
Magnús Már Einarsson
Rúna Sif í Val (Staðfest)

Rúna Sif Stefánsdóttir.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Rúna Sif Stefánsdóttir.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Rúna Sif Stefánsdóttir hefur gengið til liðs við Val en hún kemur til félagsins frá Stjörnunni.
Rúna Sif á alls 182 meistaraflokksleiki að baki og hefur skorað í þeim 48 mörk.
„Rúna Sif er sóknarsinnaður leikmaður með mikla reynslu sem mun nýtast vel á komandi tímabili,\" segir á heimasíðu Vals.
„Knattspyrnudeild Vals lýsir mikilli ánægju með að fá Rúnu Sif til félagsins vonar að hún styrki spennandi lið mfl.kvenna enn frekar.\"
Rúna mun leika á gervigrasinu á Hlíðarenda með Val næsta sumar. „Ég er mikil gervigrasmanneskja og var mjög ánægð með þessa ákvörðun að skipta í gervigras,\" sagði Rúna í viðtali við Ragnar Vignir á heimasíðu Vals.
Hér að neðan má sjá viðtalið í heild sinni en þar er einnig rætt við Ólaf Brynjólfsson þjálfara Vals.