Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 04. desember 2018 17:30
Magnús Már Einarsson
Hazard spáir því að Loftus-Cheek verði einn sá besti
Ruben Loftus-Cheek fagnar marki.
Ruben Loftus-Cheek fagnar marki.
Mynd: Getty Images
Eden Hazard, leikmaður Chelsea, hefur spáð því að Ruben Loftus-Cheek verði einn besti miðjumaðurinn í enska boltanum eftir nokkur ár.

Hinn 22 árs gamli Loftus-Cheek hefur skorað fimm mörk í síðustu sex leikjum með Chelsea en hann er að reyna að brjótast inn í liðið eftir að hafa verið á láni hjá Crystal Palace á síðasta tímabili.

„Hann er stórkostlegur leikmaður. Við vitum það öll. Ég hef æft með honum í fimm ár," sagði Hazard.

„Ég sá hann þegar ég var ungur. Hann er ekki svo ungur lengur en hann getur ennþá bætt sig."

„Í framtíðinni held ég að hann verði einn besti miðjumaðurinn hér á landi."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner