Fotbolti.net
04.10.26 - 15:11
Brynjar Ingi Erluson

Thelma lagði upp tvö í níu marka sigri - Daníela mikilvæg í titilbaráttuslag

Thelma Karen lagði upp tvö

Thelma Karen lagði upp tvö

Canon

Mynd: Guðmundur Svansson

Kvennaboltinn
Thelma Karen Pálmadóttir lagði upp tvö mörk er Häcken burstaði Uppsala, 9-0, í sænsku úrvalsdeildinni í dag.
Sænsku meistararnir eru á miklu flugi og stefna hraðbyri að öðrum meistaratitlinum í röð. Thelma var í byrjunarliði Häcken og lagði upp tvö mörk á fyrstu tuttugu mínútunum.

Þetta var fjórði deildarsigur Häcken í röð en liðið hefur ekki tapað síðan í maí. Häcken er á toppnum með 58 stig, fimm stigum á undan Hammarby sem vann 2-0 sigur á Brommapojkarna. Ída Marín Hermannsdóttir og Guðrún Arnardóttir voru báðar í byrjunarliði Hammarby.

Hammarby og Häcken mætast í stórleik í titilbaráttunni þann 18. október.

Hlín Eiríksdóttir var í byrjunarliði Malmö sem marði 1-0 sigur á Rosengård. Malmö er í þriðja sæti með 39 stig.

Í Noregi opnuðu nýliðar Álasunds titilbaráttuna upp á gátt með 2-1 sigri á toppliði Brann. Daníela Dögg Guðnadóttir lék með Álasundi og lagði upp fyrsta markið þegar tæp mínúta var liðin af leiknum. Annað markið kom hálftíma síðar.

Diljá Ýr Zomers var í byrjunarliði Brann en fór af velli á 54. mínútu. Brann minnkaði muninn seint í uppbótartíma en nær komst liðið ekki.

Brann er enn á toppnum með 47 stig en Álasund er nú aðeins þremur stigum á eftir í öðru sæti.
Daníela Dögg lagði upp í titilbaráttuslag

Daníela Dögg lagði upp í titilbaráttuslag

Canon

Mynd: Heimasíða Álasunds

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.