Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 04. desember 2019 09:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mourinho elskar Son
Mourinho og Son.
Mourinho og Son.
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Tottenham, segist elska framherjann Son Heung-min.

Mourinho tók við Tottenham fyrir tveimur vikum síðan, en í kvöld mun hann snúa aftur á fyrrum vinnustað sinn, Old Trafford í Manhester. Tottenham heimsækir þá Manchester United í ensku úrvalsdeildinni.

Son er í miklum metum hjá stuðningsmönnum Tottenham og öðrum fótboltaáhugamönnum.

Hann var í vikunni valinn leikmaður ársins frá Asíu í þriðja sinn. Mourinho hrósaði honum fyrir það.

„Þetta er í þriðja sinn sem hann vinnur verðlaunin. Ég elska hann, svo ég get rétt ímyndað mér hvernig fólki sem hefur verið með honum hérna í fjögur eða fimm ár líður. Hann er frábær strákur," sagði Mourinho.

Sjá einnig:
Mourinho: Sný aftur á stað þar sem ég var ánægður


Athugasemdir
banner
banner