Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   fös 04. desember 2020 23:41
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Hvenær fær Pellistri tækifærið hjá aðalliði Man Utd? - Skoraði fyrsta markið í kvöld
Mynd: Getty Images
Manchester United keypti Facundo Pellistri frá Penarol í Úrúgvæ í sumar. Pellistri hefur til þessa ekki komið við sögu í aðalliðsleik með United en hann hefur tvisvar sinnum verið meðal varamanna í Meistaradeildinni.

Pellistri hefur þótt leika vel með U23 liði félagsins frá komu sinni og í kvöld skoraði hann sitt fyrsta mark með liðinu þegar sigur vannst á Southampton.

Ole Gunnar Solskjær, stjóri United, var spurður út í Pellestri á blaðamannafundi í dag.

„Facundo hefur komið inn í liðið, æft með aðalliðinu og gert vel. Okkar mat er að núna þarf hann að fá mínútur á vellinum og best að þær komi í U23 liðinu. Hann hefur spilað nokkra leik og er að aðlagast vel."

Nokkrum klukkutímum eftir þessi orð Solskjær skoraði Pellistri sitt fyrsta mark í rauðu treyjunni í upphafi seinni hálfleiks í 3-1 sigri. Pellistri hefði getað skorað annað en hann skaut í þverslána úr upplögðu færi.


Athugasemdir
banner