Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   fös 04. desember 2020 20:22
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sjáðu atvikið: Andrich fékk beint rautt í Berlín - Fótur í höfuð
Mynd: Getty Images
Í kvöld fer fram nágrannaslagur Herthu og Union Berlin í þýsku Bundesliga.

Nú er hálfleikur og leiða gestirnir í Union með einu marki. Markið skoraði Taiwo Awoniyi eftir undirbúning Marcus Ingvartsen á 20. mínútu. En á 23. mínútu misstu gestirnir mann af velli.

Robert Andrich fór mjög hátt með fótinn þegar hann reyndi að ná í boltann og ekki vildi betur en svo að hann fór ofan á herðar Lucas Tousart og í höfuð Frakkans. Atvikið var skoðað í VAR og uppskar Andrich rauða spjaldið.

Sjáðu atvikið hér.
Athugasemdir
banner
banner