Fotbolti.net
05.01.16 - 07:30
Ívan Guðjón Baldursson

Gnabry aftur til Arsenal (Staðfest)

Gnabry aftur til Arsenal (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Serge Gnabry er á leið aftur til Arsenal eftir slæma dvöl á láni hjá West Bromwich Albion.

Hjá West Brom hefur þýski sóknartengiliðurinn aðeins spilað 12 mínútur af úrvalsdeildarbolta og mun að öllum líkindum vera lánaður í Championship deildina út tímabilið.
Gnabry skrifaði undir lánssamning við West Brom út tímabilið en líður ekki vel hjá félaginu þar sem hann hefur ekki fengið tækifæri.

Gnabry spilaði síðast í 3-0 tapi West Brom gegn Norwich í deildabikarnum og segir Tony Pulis, stjóri West Brom, að Gnabry sé einfaldlega ekki orðinn nógu góður fyrir úrvalsdeildina.

Gnabry er 20 ára gamall og hefur leikið tíu úrvalsdeildarleiki fyrir Arsenal og skoraði í þeim eitt mark. Gnabry hefur þá spilað fyrir öll yngri landslið Þýskalands og er byrjunarliðsmaður hjá U21 landsliðinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.