Fotbolti.net
05.01.22 - 10:30
Elvar Geir Magnússon

Brighton fær 18 ára Pólverja - Lánaður til Belgíu (Staðfest)

Kozlowski á landsliðsæfingu.

Kozlowski á landsliðsæfingu.

Canon

Mynd: EPA

Brighton hefur keypt pólska landsliðsmanninn Kacper Kozlowski frá Pogon Szczecin en kaupverðið á þessum átján ára leikmanni er ekki gefið upp.

Táningurinn skrifar undir samning til 2026 en hann á sex A-landsleiki fyrir Pólland. Hann verður lánaður til belgíska toppliðsins Royale Union St-Gilloise út yfirstandandi tímabil.
Kozlowski varð yngsti leikmaðurinn til að spila á EM en hann var sautján ára þegar hann kom af pólska bekknum í 1-1 jafntefli gegn Spánverjum á EM alls staðar í júní.

„Hans leikstíll hentar okkur og okkar leikstíl. Síðan ég kom höfum við gert mjög vel í að fá inn leikmenn fyrir framtíðina. Það er mikilvægt að hann haldi áfram að þroskast og bæta sig, þess vegna fer hann beint á lán. Við fylgjumst grannt með honum því hann er spennandi ungur hæfileikaríkur leikmaður sem ég hlakka til að vinna með í framtíðinni," segir Graham Potter, stjóri Brighton.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Brighton10+1922
3Man City10+821
4Liverpool10+418
5Chelsea10+316
6Everton10+216
7Bournemouth10+215
8Brentford10+514
9Leeds10+214
10Aston Villa10-313
11Tottenham10-112
12Newcastle10-312
13Hull City10011
14Ipswich Town10-511
15Fulham10-210
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Man Utd10-58
19Sunderland10-98
20Crystal Palace10-147
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.