05.01.22 - 06:00
Victor Pálsson
Man Utd lánar Mengi til Birmingham (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Teden Mengi hefur skrifað undir lánssamning við Birmingham í ensku Championship-deildinni.
Þetta var staðfest í gær en um er að ræða 19 ára gamlan leikmann sem kemur til liðsins frá Manchester United.
Lánssamningurinn gildir út tímabilið en Mengi spilaði með Derby County í láni í fyrra og spilaði níu leiki.
Um er að ræða enskan U20 landsliðsmann sem hefur leikið einn leik fyrir aðallið Man Utd í Evrópukeppni.
Birmingham situr í 18. sæti deildarinnar eftir 24 umferðir.