Fotbolti.net
05.02.13 - 14:39
Magnús Már Einarsson

Björn Pálsson í Víking Ó. (Staðfest)

Björn (til vinstri) í leik með Ólafsvíkingum.

Björn (til vinstri) í leik með Ólafsvíkingum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Björn Pálsson hefur gengið til liðs við Víking Ólafsvík en hann kemur frá Stjörnunni.

Björn þekkir vel til í Ólafsvík því hann var á láni hjá félaginu allt síðastliðið sumar sem og síðari hluta sumars árið 2011.
Í fyrra spilaði Björn alla leiki Ólafsvíkinga í fyrstu deildinni og skoraði þrjú mörk.

Björn hefur leikið með Ólafsvíkingum í Fótbolta.net mótinu að undanförnu og hann hefur nú fengið félagaskipti.

Víkingur Ólafsvík mun leika í Pepsi-deildinni í fyrsta skipti í sumar en liðið endaði í öðru sæti í fyrstu deildinni í fyrra.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.