05.02.13 - 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Gasperini rekinn frá Palermo (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Gian Piero Gasperini tók við þjálfarastarfi Palermo í september eftir mörg þjálfaraskipti út um alla ítölsku A-deildina.
Palermo er óvænt í 19. sæti deildarinnar og hefur liðið ekki unnið neinn af síðustu níu leikjum sínum. Palermo féll þá einnig úr bikarnum á heimavelli gegn Emil Hallfreðssyni og félögum í Verona.

,,Palermo tilkynnir að félagið hefur látið þjálfara aðalliðsins, Gian Piero Gasperini, taka pokann sinn,\" stendur í yfirlýsingu frá félaginu.
Líklegt er að Alberto Malesani taki við stjórn Palermo, en hann er fyrrverandi þjálfari Fiorentina og var einnig rekinn tvisvar frá Genoa á síðasta tímabili.

Heimild: FIFA