Fotbolti.net
05.02.14 - 09:47
Magnús Már Einarsson

Bjarki Már tekur við Tindastóli (Staðfest)

Bjarki Már og Snorri Geir Snorrason formaður m.fl. ráðs við undirritunina í gærkveldi

Bjarki Már og Snorri Geir Snorrason formaður m.fl. ráðs við undirritunina í gærkveldi

Canon

Mynd: Tindastóll

Bjarki Már Árnason hefur verið ráðinn þjálfari Tindastóls en þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá félaginu í dag.
Jón Stefán Jónsson og Tindastóll komust að samkomulagi um að hann myndi hætta sem þjálfari á dögunum eftir óvissu um hvort liðið myndi taka þátt í 1. deildinni í sumar eða ekki.

Bjarki Már hefur í kjölfarið stýrt Tindastóli í leikjum í Fótbolta.net mótinu og nú hefur verið gengið frá samningi við hann.

,,Bjarki er öllum hnútum kunnugur hjá Tindastóli og þekkir leikmenn liðsins vel. Hans næstu verkefni eru að vinna í leikmannamálum, taka þátt í Lengjubikarnum og undirbúa liðið fyrir átök 1.deildar,\" segir í tilkynningunni.

Hinn 35 ára gamli Bjarki var lykilmaður hjá Tindastóli frá 2005 til 2011 áður en hann lék með varaliði félagsins Drangey sumarið 2012. Í fyrrasumar spilaði hann síðan með Magna Grenivík.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.