Fotbolti.net
05.02.14 - 20:56
Ívan Guðjón Baldursson

Otamendi til Valencia á 15 milljónir (Staðfest)

Otamendi til Valencia á 15 milljónir (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Valencia er búið að staðfesta komu Nicolas Otamendi til félagsins fyrir 12 milljónir evra sem gætu þó orðið 15.

Otamendi er 25 ára gamall argentínskur varnarmaður og kemur hann til félagsins 1. júlí á fimm ára samning, til 2019.
,,Eftir að hafa spilað fyrir félag eins og Porto, sem er stórt og virt félag, er það heiður fyrir mig að ganga til liðs við Valencia CF fyrir næsta stig ferilsins,\" sagði Otamendi.

,,Valencia er eitt af sögufrægustu og mest aðlaðandi liðum Spánar og Evrópu. Ég er mjög ánægður með þetta skref á knattspyrnuferlinum.

,,Ég veit að argentínskir leikmenn hafa verið mikilvægir fyrir Valencia í fortíðinni. Það er ábyrgð að spila í sömu treyju og Mario Kempes, Roberto Ayala, Pablo Aimar og margir margir aðrir samlandar mínir hafa spilað í.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.