05.02.14 - 19:47
Magnús Már Einarsson
Ragnar Pétursson í Þrótt (Staðfest)

Gregg Ryder þjálfari Þróttar og Ragnar Pétursson.

Mynd: Þróttur

Þróttur hefur fengið miðjumanninn Ragnar Pétursson til liðs við sig frá ÍBV.
Ragnar spilaði með Þrótti í sigri liðsins á Fylki í Reykjavíkurmótinu á dögunum og hann hefur nú samið við félagið.

Gregg Ryder, þjálfari Þróttar, þekkir Ragnar vel eftir að hafa verið aðstoðarþjálfari ÍBV í fyrra.
Ragnar er fæddur árið 1994 en hann ólst upp hjá Hetti á Egilsstöðum.
Eftir að hafa hjálpað Hetti upp úr 2. deildinni 2011 og spilað með liðinu í fyrstu deild ári síðar þá skipti Ragnar yfir í ÍBV.
Ragnar spilaði síðan fimmtán leiki með Eyjamönnum í Pepsi-deildinni í fyrra og skoraði eitt mark.