Fotbolti.net
05.02.14 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Sigurður og Haukur taka við Ísbirninum (Staðfest)

Haukur Benedikt Runólfsson, Denis Grbic og Sigurður Steinsson.

Haukur Benedikt Runólfsson, Denis Grbic og Sigurður Steinsson.

Canon

Mynd: Ísbjörninn

Ísbjörninn í Kópavog hefur ráðið Hauk Benedikt Runólfsson og Sigurð Steinsson sem þjálfara fyrir keppni í 4. deild karla í sumar. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá félaginu en hana má sjá hér að neðan.
Fréttatilkynning frá Ísbirninum:
Litla 4.deildar liðið Ísbjörninn frá Kópavogi var í dag að ráða til sín tvo reynslu mikla þjálfara fyrir komandi tímabil. Um er að ræða hinn 33 ára Hauk Benedikt Runólfsson og Sigurð Steinsson 36 ára.

Haukur og Sigurður eru báðir reynsluboltar bæði sem leikmenn og þjálfarar. Munu þeir vera spilandi þjálfarar á komandi tímabili ásamt því að stýra liðinu.

Haukur Benedikt hefur séð um þjálfun yngri flokka hjá Tindastóli um árabil. Aðalhlutverk Hauks hjá liðinu verður að vinna með varnahluta liðsins þar sem hann er með gífulega mikla þekkingu og reynslu á því sviði og einnig mikill varnarjaxl sjálfur.

Sigurður er reynslu mikill leikmaður sem hefur leikið í fjölda mörgum liðum á undanförnum árum. Þar má helst nefna lið Stjörnunnar, ÍR, ÍH og Ægis en hann á um 100 meistaraflokks leiki að baki í helstu deildum landsins. Sigurður er liðinu vel kunnugur þar sem hann sá um þjálfun liðsins á tímabilinu 2011-2012. Hann hefur einnig þjálfað lið ÍH og UMFB (Ungmennafélga Barðastrandar) en hann var meðal annars einn af stofnendum þess félags. Sigurður mun sjá um sóknarleik liðsins en þar liggur hans megin þekking og reynsla.

Undirbúnings tímabilið hjá Ísbirninum hefur gengið prýðilega vel og hefur félagið verið duglegt að styrkja leikmannahópinn með því að fá til sín marga öfluga leikmenn á undanförnum vikum. Stjórn félagsins bindur miklar vonir fyrir komandi tímabil og vonar að með tilkomu nýrra þjálfara muni liðið ná góðum árangri.
Sigurður og Haukur taka við Ísbirninum (Staðfest)
Canon

Mynd: Ísbjörninn

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.