Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
banner
   mið 05. febrúar 2020 14:38
Magnús Már Einarsson
Clara Sigurðardóttir í Selfoss (Staðfest)
Clara Sigurðardóttir.
Clara Sigurðardóttir.
Mynd: Selfoss
Unglingalandsliðskonan Clara Sigurðardóttir skrifaði í dag undir samning við knattspyrnudeild Selfoss en hún kemur til félagsins frá ÍBV.

Clara, sem er 18 ára gamall miðjumaður, hefur leikið 57 leiki í efstu deild og bikar með ÍBV en hún er uppalin í Vestmannaeyjum. Þá hefur hún leikið 6 leiki með U19 ára landsliði Íslands, 16 leiki með U17 og 13 leiki með U16.

„Við erum mjög ánægð með að leikmaður á hennar kaliberi vilji koma í knattspyrnuakademíuna í Fjölbrautaskóla Suðurlands og spila með Selfossi. Hún mun klárlega styrkja hópinn og liðið okkar. Þrátt fyrir ungan aldur er hún með mikla reynslu og við hlökkum mikið til að vinna með henni,“ segir Alfreð Elías Jóhannsson, þjálfari Selfoss.

Selfoss varð bikarmeistari á síðasta tímabili og endaði í 3. sæti í Pepsi Max-deildinni sem er besti árangurinn í sögu félagsins.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner