05.02.20 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Jurgen Locadia lánaður til Cincinnati (Staðfest)

Jurgen Locadia.

Mynd: Getty Images

Jurgen Locadia.

Mynd: Getty Images
Jurgen Locadia, sóknarleikmaður Brighton í ensku úrvalsdeildinni, hefur verið lánaður til FC Cincinnati í MLS-deildinni.
Hann verður leikmaður Cincinnati þegar félagaskiptaglugginn í Bandaríkjunum opnar þann 12. febrúar næstkomandi.

Cincinnati fær möguleika á að kaupa Hollendinginn þegar að lánssamningur hans endar þann 5. júlí.
Locadia var á láni hjá Hoffenheim í Þýskalandi fyrri hluta þessa tímabils. Hann spilaði 12 leiki og skoraði fjögur mörk. Brighton kallaði hann til baka í síðustu viku, og lánar hann aftur núna.
Locadia er 26 ára gamall og spilaði 33 leiki fyrir Brighton á síðustu leiktíð. Hann var keyptur fyrir 14 milljónir punda, þá metfé hjá Brighton, frá PSV Eindhoven í janúar 2018.