Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 05. febrúar 2023 14:10
Aksentije Milisic
Osimhen stökk upp í stúku og bað stuðningsmann afsökunar
Victor Osimhen.
Victor Osimhen.
Mynd: EPA

Victor Osimhen, sóknarmaður Napoli, skoraði tvennu í sigri Napoli á Spezia í Serie A deildinni fyrr í dag.


Þessi leikmaður frá Nígeríu er að spila frábærlega og hefur hann verið orðaður við mörg af stærstu liðum Evrópu upp á síðkastið.

Þegar hann var að hita upp fyrir leikinn gegn Spezia í dag þá þrumaði hann boltanum upp í stúku sem endaði með því að hann fór í stelpu sem er stuðningsmaður Spezia.

Þegar Osimhen áttaði sig á því hvað gerðist þá tók hann á rás og stökk upp í stúkuna hjá stuðningsmönnum Spezia.

Hann rölti upp og fann stelpuna þar sem hann knúsaði hana og bað hana afsökunar. Aðrir stuðningsmenn Spezia voru mjög ánægðir með leikmanninn og klöppuðu fyrir honum.


Athugasemdir
banner
banner
banner