05.03.13 - 18:28
Elvar Geir Magnússon
Jernej Leskovar í Víking Ólafsvík (Staðfest)

Jónas Gestur Jónasson og Jernej Leskovar.

Mynd: Vikingurol.is

Jónas Gestur Jónasson og Jernej Leskovar.

Mynd: Vikingurol.is
Víkingur Ólafsvík samdi í dag við Jernej Leskovar frá Slóveníu en hann hefur verið á reynslu hjá liðinu síðan á fimmtudag. Jernej spilaði hátt í 85 mínútur gegn Val á sunnudaginn þar sem Valur fór með 1-0 sigur af hólmi í æfingaleik.
Þetta kemur fram á vefsíðu Ólafsvíkurliðsins sem er nýliði í Pepsi-deildinni á komandi tímabili.
Þetta kemur fram á vefsíðu Ólafsvíkurliðsins sem er nýliði í Pepsi-deildinni á komandi tímabili.
„Ég tel að Jernej muni nýtast okkur vel í sumar þar sem hann getur bæði spilað á vinstri kant og sem sóknartengiliður. Þannig mun hann auka breidd hópsins fram á við.“ sagði Jónas Gestur Jónasson, formaður knattspyrnudeildar félagsins, við undirritun samningsins í dag.
Jernej (“Jerry”) var áður á mála hjá NK Sampion Selje í heimalandinu þar sem hann hefur spilað undanfarin ár. Hann er fæddur árið 1988 og verður því 25 ára í sumar.
Unnið er að því að hann fái leikheimild fyrir næsta leik liðsins í Lengjubikarnum sem er gegn Tindastóli í Akraneshöll næsta laugardag klukkan 12:00.

Heimild: Heimasíða Víkings Ó.