05.03.14 - 11:11
Magnús Már Einarsson
Nemanja Vidic til Inter í sumar (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Inter hefur staðfest að Nemanja Vidic muni koma til félagsins frá Manchester United í sumar.
Vidic hefur verið í lykilhutverki hjá Manchester United síðan hann kom til félagsins árið 2006.
Í síðasta mánuði var greint frá því að þessi öflugi varnarmaður hefði ákveðið að yfirgefa herbúðir Manchester United þegar samningur hans rennur út í sumar.
Hinn 32 ára gamli Vidic vildi ekki spila með öðru félagi á Englandi en hann hefur nú náð samkomulagi við Inter.
Vidic hefur verið orðaður við Inter undanfarnar vikur og ítalska félagið staðfesti félagaskiptin í dag.